Velkomin á heimasíðu Hrings
KEA mótaröð 2012 Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 04. Febrúar 2012 21:23
Skráning er hafin fyrir Fjórgang KEA mótaraðarinnar sem fram fer fimmtudaginn 9. febrúar og er skráning á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest, og það þarf að leggja inná:
reikn 0302-26-15841 kt: 430269-6749 (a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður).
Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist.

Skráningu lýkur kl. 19:00 mánudaginn 6. febrúar. Ráslistar verða birtir þriðjudaginn 7. febrúar.

Taka þarf fram nafn knapa og kennitölu og í hvaða grein er verið að skrá í, nafn hests og IS-númer. Án þessara upplýsinga er skráningin ógild.

Mótið hefst kl. 19:00, fimmtudaginn 9. Knapafundur hefst klukkutíma fyrir upphaf móts.

Mótanefnd Léttis

 
Snjómokstur á reiðvegum Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 27. Janúar 2012 11:28
Eins og flestir hafa orðið varir við þá hefur bætt mikið á snjóinn og flestar reiðleiðir orðnar íllfærar. Stjórnin hestamannafélagsins hefur ákveðið að halda reiðveginum opnum eins og hægt er miðað við aðstæður og veður hverju sinni. Þá verður aðaláhersla lögð á reiðveg frá Hringsholti og fram að Tjörn, með hækkandi sól verður reynt að opna fleiri leiðir.
 
Nýtt greiðslutímabil í reiðgerði. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Janúar 2012 21:50
Eins og undanfarin ár greiða notendur reiðgerðis aðstöðugjald fyrir notkun á innanhúsaðstöðu í Hringsholti. Nánari upplýsingar er að finna hér í valstikunni hægra megin undir flipanum "reiðgerði".
 
Kennsla hjá börnum og unglingum að hefjast. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 24. Janúar 2012 20:00

Kennsla barna og unglinga hefst laugardaginn 28 janúar næstkomandi.

Fyrirkomulag um næstu helgi og hópar (sjá nánar): 

Á næsta laugardag eiga hópur 1 og 2 að mæta klukkan 14.00 og hópur 3 og 4 klukkan 15.00 Er þetta vegna knapamerkjakennslu sem verður fyrir hádegi á laugardeginum 28.01 næstkomandi.
Það eiga allir að mæta með hestana sína með stallmúl og taum, þið eigið að taka með ykkur kamba og síðan að sjálfsögðu reiðtygin ykkar. (Beisli, reiðmúl, písk og hnakk)
Farið verður yfir umhirðu hestanna ykkar og ábyrgð hesteigenda og knapa.

Nánar...
 
Umgengisreglur í reiðgerði. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 16. Janúar 2012 21:52
Af gefnu tilefni er notendum reiðgerðis bent á að kynna sér umgengisreglur inniaðstöðu Hrings. Þær er að finna hér til hægri á síðunni undir flipanum "reiðgerði" - "umgengisrelgur".  Einng minnum við á greiðslu fyrir notkun á gerðinu, upplýsingar er einnig að finna undir "reiðgerði".
 
Knapamerki 2012 Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 16. Janúar 2012 21:49
Þá fara knapamerkin að hefja göngu sína, mikil aðsókn er í námskeiðin og því þurfti að skipta fjöldanum í nokkra hópa. Hægt er að sjá hópana og tímaplanið í valstikunni hér til hægri undir "knapamerki 2012".
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Við styðjum Hring

Borði

Gestagangur

mod_vvisit_counterí dag9
mod_vvisit_counterí gær192
mod_vvisit_countervikan201
mod_vvisit_counterfrá opnun164288
Borði

Ísmót Video