Velkomin á heimasíðu Hrings
Opnu Bjargarleikarnir Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 26. Júlí 2010 10:29
Dagana 31. júlí- 1. ágúst verða haldnir opnir Bjargarleikar

Tölt opinn flokkur
Fjórgangur opinn flokkur
Fimmgangur opinn flokkur
100 metra skeið
Tölt opinn flokkur 15ára og yngri.
Nánar...
 
150 m skeið - Viðbót í dagskrá Fiskidagskappreiða Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25. Júlí 2010 23:02
Vegna eftirspurnar hefur mótanefnd Hrings ákveðið að bæta við 150m skeiði í áður auglýsta dagskrá Prómens Fiskidagskappreiða. Vonumst við til að sem flestir láti sjá sig. Nú þegar eru skráningar farnar að detta í hús og því hækkar verðlaunapotturinn frá degi til dags. En eins og áður hefur komið fram rennur helmingur af skráningargjaldi hverrar greinar beint í verðlaunafé.
 
Nýr félagsbúningur Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25. Júlí 2010 22:54

Þá er nýji félagsbúningurinn kominn í hús og tilbúinn til sölu. Eins og er eigum við flestar stærðir í karla og kvenna sniðum. Fyrstir koma fyrstir fá, en það verður hægt að pannta jakka síðar ef stærðirnar passa ekki eða seljast upp. Hægt er að hafa samband við Svein T. eða Guðrúnu Önnu varðandi mátun á jökkunum.

Félagið mun eiga jakka í barna stærðum sem lánaðir verða út eftir þörfum.

 
Glæsilegur árangur Önnu Kristínar Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 22. Júlí 2010 11:09

Eins og áður hefur komið fram á heimasíðunni tók Anna Kristín Friðriksdóttir þátt í Youth Cup leikunum sem fram fóru í Danmörku fyrr í mánuðinum. Fyrirkomulagið á leikunum er þannig að fyrstu dagana fá krakkarnir tækifæri til að kynnast lánshestum og taka þátt í skipulögðum æfingum á vegum liðstjóra þeirra landa sem taka þátt. Anna fékk lánshest hjá Agnari Snorra Stefánssyni Djákna frá Votmúla.

Nánar...
 
Fiskidagskappreiðar Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 19. Júlí 2010 01:46

Fiskidagskappreiðar 2010.

Fimmtudaginn 5. ágúst verða haldnar kappreiðar á Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík.

Keppt verður í 100m skeiði fljúgandi start, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum – Rafræn tímataka.

Vegleg peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein, að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net.

Skráningargjald er kr 3000. á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.

Skráningargjald greiðist inn á reikning félagsins fyrir kl. 20:00 þriðjudaginn 3.ágúst.

Kt. 540890-1029   Reikn.1177-26-175 – skýring:Nafn knapa

Kvittun sendist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.    

Mótshaldarar áskila sér rétt að fresta móti, verði þátttaka ekki næg.

Mótanefnd Hrings.

Nánar...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL