Velkomin á heimasíðu Hrings
Enn Hægt að pannta Softshell jakka. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 04. September 2009 12:30
Mjög góðar undirtektir hafa verið við pöntun og mátun á nýju Shoftshell jökkunum. Um 40 manns hafa panntað jakka sem er töluvert meira en við reiknuðum með í fyrstu. Enn er hægt að máta og pannta hjá Guðrúnu Ernu, en hún er komin með jakkana heim til sín og er því best að hafa samband við hana og ákveða tíma. Við höfum jakkana fram á föstudaginn 11.september eftir þann tíma verður lokað á fyrstu pönntun.
 
Fiskidagur 2009 Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01. September 2009 01:52
Fiskidagur var haldin hátíðlegur í 9 skiptið í ár. Hringsfélagar létu sitt ekki eftir liggja í þeim efnum og mönnuðu eina grillstöð. Um 20 félgar skiptu með sér verkum á 4 vöktum og stóðu sig með mikillri príði. Allir boðnir og búnir að hjálpa til og aðstoða. Fyrsta vaktin var mætt um 8:30 og setti upp grill básinn með tilheyrandi búnaði. Grillin voru orðin heit um 10:00 þegar fyrstu gestirnir mættu á svæðið og smökkuðu á því sem boðið var uppá. Eftir vel heppnaðan dag var öllu pakkað saman um 17:00. Á myndasíðunni má sjá nokkrar myndir sem voru teknar í "Hringsbásnum".
 
Átt þú lausamuni eða vélar í gryfjunni neðan við Hringsholt? Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01. September 2009 00:32

Átt þú lausamuni eða vélar í gryfjunni neðan við Hringsholt? 

Tilkynning frá stjórnum Hesthúseigendafélagsins í Hringsholti og hestamannafélaginu Hring.   

Af gefnu tilefni er eigendum lausamuna og véla sem settir hafa verið í gryfjuna neðan við Hringsholt bent á, að af kröfu heilbrigðisfulltrúa norðurlands eystra þá skulu þeir hlutir sem þar eru fjarlægðir. Hafa stjórnir ofangreindra félaga ákveðið í sameiningu við heilbrigðisfulltrúa og starfsmenn umhverfissviðs Dalvíkurbyggðar að gefa eigendum frest til 10.september til að fjalægja umrædda hluti.

Sé því ekki fylgt eftir verða hlutirnir fjarlægðir á kostnað eigenda.
Nánar...
 
Mátun á Softshell jökkunum Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 31. Ágúst 2009 01:04

Þá eru softshell - jakkarnir tilbúnir til mátunar og verður það gert nk. miðvikudag 2.september milli kl.16:00 og 18:00 í Hringsholti. þeir sem ekki komast þá eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Guðrúnu Ernu í síma 864-7795. Jakkarnir eru í barnastærðum frá ca 5-6 ára, kvennsnið og karlsnið. Verð á jakka er um 7000 kr. barnajakkarnir verða sennilega milli 5000 og 6000 kr.

 

 
Dynjandi frá Dalvík Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 28. Ágúst 2009 23:17
Eins og flestir sem fylgdust með heimsmeistaramótinu sem fram fór í Sviss í sumar var þar hestur frá Dalvík sem keppti fyrir Bandaríkin. Hesturinn var Dynjandi frá Dalvík ræktaður af Hringsfélaganum Rafni Arnbjörnssyni. Dynjandi er undan Andvara frá Ey og Vordísi frá Dalvík. Dynjandi hefur verið nokkuð sigursæll og tók m.a. þátt í meistaradeildinni með góðum árangri. Á heimsmeistaramótinu var það Ásta D. Bjarnadóttir sem sat í hnakknum.  Hægt er að sjá Facebooksíðu Dynjanda hér, einnig eru myndbönd af honum á youtube. Þarna er glæsilegur hestur á ferð :)
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL