Velkomin á heimasíðu Hrings
Viðhald á reiðvegi Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22. Júní 2010 00:00

Fyrir um rúmri viku síðan stóð reiðveganefnd fyrir vinnudegi í samráði við félagsmenn og bændur í Svarfaðardal. Verkefnið var að klára reiðveginn sem byrjað var á í fyrra sumar. Núna er því kominn reiðvegur frá Hringsholti samfleytt að Bakka og eru þetta um 10 km. Hafist var handa að morgni, tekið smá matarhlé þar sem fjáröflunnarnefndin sá um að kokka ofan í "vinnumenn". Verkinu lauk svo um 17:00 og deginum slúttað með grilli. Viljum við þakka öllum þeim sem að þessu komu, enda nánast óframkvæmanlegt án ykkar allra. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá vinnudeginum.

Nánar...
 
Fundur um búfjárhald í Dalvíkurbyggð Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14. Júní 2010 23:38

Stjórn hestamannafélagsins Hrings býður til fundar um búfjárhald í Dalvíkurbyggð.

Fundurinn er opinn öllum sem málaflokkinn varða á einn eða annan hátt.

Fundurinn verður haldinn að Rimum,

þriðjudaginn 15.júní kl 20:00

Nánar...
 
Tilkyning frá stjórn og hagaráði Hrings Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14. Júní 2010 00:16
Af gefnu tilefni vill stjórn félagsins ásamt hagaráði koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Félagsmönnum er ekki heimilt að taka hross annarra í hagagöngu nema í samráði við hagaráð. Stundi félagsmenn tamningar fyrir aðra en félagsmenn og/eða að félagsmaður fái lánuð hross til ferðalaga eða annarra afnota getur hagaráð veitt félagsmanni tímabundið leyfi gegn gjaldi. Þó skal fjöldi hrossa ekki vera meiri en 10 fyrir hvern félagsmann.

Skulu félagsmenn ganga fyrir í umsóknum um haga félagsins  .

 
Opinn fundur um búfjárhald í Dalvíkurbyggð. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 10. Júní 2010 23:14

Stjórn hestamannafélagsins auglýsir opin upplýsinga- og fræðslufund um búfjárhald í Dalvíkurbyggð. Fundurinn verður haldinn á Rimum þriðjudaginn 15.júní kl.20:00. Á fundinn mæta, bæjartæknifræðingur, hérðasdýralæknir, fulltrúi Búgarðs og fulltrúi lögreglunnar. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.

Takið kvöldið frá.

 
Sumarnámskeið fyrir börn og unglinga Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 10. Júní 2010 23:10
Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga verður haldið í Hringsholti dagana 21.
- 28. júní. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Hjörleifsson. Verð kr. 12.900.
Systkinaafsláttur. Skráning og nánari upplýsingar fást í síma 4661679 eða
í farsíma 861-9631.
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL