Velkomin á heimasíðu Hrings
Opnun haga við Hringsholt Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 08. Júní 2010 10:22

Miðvikudaginn 9.júní kl 17:00 verður opnað fyrir hagagöngu í hólfunum við Hringsholt.  

Eigendur hrossa í Dalvíkurhólfi eru vinsamlegast beðnir um að sækja hrossin fyrir sunnudaginn 13.júní kl 20:00. Áður en hrossum er sleppt í hagana við Hringsholt hafið þá samband við Steinar í s. 8642703,  4661456 eða 8622456.

Athugið að ganga þarf frá greiðslu áður en hrossum er sleppt í hólfin. Umsóknareiðublöð er hægt að nálgast hjá Steinari Steingrímssyni, eða á heimasíðunni undir flipanum  "Félagið" - "eyðublöð".

 

 
Árgjald félagsins Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 04. Júní 2010 10:17

Á síðasta aðalfundi sem haldinn var 14. mars 2010 bar stjórn Hrings upp þá hugmynd að bjóða félagsmönnum upp á það að greiða árgjaldið inn á reikning félagsins, t.o.m  30 júní.  Eftir þann tíma þá munum við senda þeim sem ennþá skulda árgjaldið greiðsluseðil, eins og gert hefur verið hingað til, að viðbættum kostnaði. 

Árgjaldið er 7.000 kr. Hjón og fólk í sambúð greiða 1 ½  árgjald eða 10.500 kr. og ungmenni  17-20 ára greiða ½ árgjald eða 3.500 kr.

Reikningur félagsins sem greiða skal inná er 1177-26-175 kt: 540890-1029.  Ef greitt er í heimabanka sendið þá kvittun á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (kostar ekkert að senda kvittun á e-mail) eða látið setja kennitölu greiðanda ef þið farið í Sparisjóðinn að borga.

 
Úrtaka vegna LM2010 feld niður. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01. Júní 2010 17:10

Eins og flestir hafa tekið eftir þá hefur Landsmót verið slegið af í ár, því verða úrtökur sem halda átti 5. og 19. júní í samstarfi við Létti feldar niður.

Mótanefnd Hrings

 
Minnum á úrtökumót Léttis og Hrings Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 28. Maí 2010 23:03
Við minnum þá sem hug hafa á því að spreyta sig á öðru hvoru úrtökumótinu að skráningu fyrir bæði mótin lýkur á sunnudagskvöld. Athugið að þeir sem einungis ætla að taka þátt í seinna mótinu verða engu að síður að skrá sig fyrir sunnudagskvöld. Endilega fylgist með fréttum af mótinu á www.lettir.is
 
Frestun á atriði barnanna. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 28. Maí 2010 00:55

Þar sem hestapestin hefur knúið dyra hjá okkur og talið er að 6-8 vikur geti liðið frá upphafi hennar og þar til hross hafi náð sér að fullu getum við ekki annað en frestað um óákveðinn tíma atriðinu okkar sem við vorum búin að tala um að sýna á Sjómannadaginn, sem átti upphaflega að vera á æskan og hesturinn á Sauðárkrók. Spurning væri hvort hægt væri að sýna þetta samhliða Fiskidagskappreiðum sem fyrirhugaðar eru um Fiskidagshelgina en það verður bara að koma í ljós síðar.

Bestu kveðjur Guðrún Rut.

 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL