|
Fiskidagskappreiðar. |
|
|
Miðvikudagur, 12. Maí 2010 01:04 |
|
Fréttatilkynning frá mótanefnd.
Eins og fram hefur komið á viðburðadagatali félagsins er fyrirhugað að halda Fiskidagskappreiðar fimmtudaginn 5.ágúst. Hugmyndin á bak við kappreiðarnar er að mynda áhorfendavæna íþrótta-hestakeppni þar sem allir geta fylgst með, bæði reyndir sem óreyndir í hestaheiminum. Í kringum fiskidag er mikið um manninn í sveitarfélaginu og teljum við þetta góða viðbót við aðra viðburði á svæðinu og tilvalin skemmtun fyrir m.a. gesti fiskidagsins. Í dag var það svo ljóst hver aðal styrktaraðili mótsins yrði. Prómens á Dalvík hefur ákveðið að koma að mótinu með myndarlegum hætti og þar með er það tryggt að veglegt verðlaunafé verður í boði fyrir 3 efstu sæti í hverri grein. Hversu stór potturinn endanlega verður í hverri grein ræðst af þáttöku þar sem prósentuhlutfall af skráningargjöldum munu renna í pottinn.
Mótið er að sjálfsögðu opið öllum og vonumst við til að sjá sem flesta - takið daginn og (fiskidags)helgina frá. Nánari upplýsingar munu verða birtar á heimasíðu félagsins sem og öðrum hestamiðlum.
Mótanefnd Hrings |
|
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |