Velkomin á heimasíðu Hrings
1.maí reið og kaffi. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 30. Apríl 2010 00:02

Á laugardaginn 1. maí verður hin hefðbunda hópreið hestamannafélagsins. Lagt verður af stað kl 12:00 frá Hringsholti og riðið fram í Bakka, tekið stutt stopp og riðið tilbaka. Þar sem að ákveðið var að fara ekki á Æskan og Hesturinn verður börnum boðið að ríða fram í Jarðbrú og verður Guðrún Rut í broddi fylkingar. Hugmyndin er svo að þegar börnin koma tilbaka í Hringsholti verði farið í leiki með þeim fram að kaffi.

Kaffisala fjáröflunarnefndar verður á sínum stað í félagsaðstöðunni frá kl 15:30.

Að kaffinu loknu eða frá kl 17:00 er búið að fá sundskálann leigðan og er hann opinn öllum félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Vonumst til sjá sem flesta.:)

 
Æskan og hesturinn - uppfært. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 26. Apríl 2010 19:22

Eins og áður hefur komið fram hefur hósti herjað á hesta á landinu. Er það mat foreldra sem og annara að bjóða ekki þeirri hættu heim að hóstinn smitist með okkur. Því hefur verið tekin sú ákvörðun að fara ekki á Æskan og hesturinn eins og áður var áætlað.

Áveðið hefur verið að stefna á 1.mai reið frá Hringsholti á laugardaginn 1.mai. Þangað viljum við helst sjá sem flesta bæði börn og fullorðna. Eftir reiðtúrinn verður farið í leiki með börnunum og hið hefðbunda 1.maí kaffi verður á sínum stað. Sendum við nánari dagskrá fyrir daginn þegar nær dregur.

 
Æskan og hesturinn - hósti og fl. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25. Apríl 2010 20:20
Eins og flestir vita hefur hósti hrjáð marga hesta um landið. Þetta er sagt smitandi og í einhverjum tilfellum hafa sýningar og/eða samkomur þar sem hestar koma nærri verið feldar niður eða frestað. Ekki hefur komið nein tilkynning um það frá forráðamönnum Æskunnar og hestsins, og hafa því málin verið sett í hendur á þátttakendum hvort þeir mæti á svæðið. Við erum mjög tvístígandi í þessu hvað gera skal og biðjum við því um ykkar aðstoð í því sambandi.  Það verður æfing hjá krökkunum í Mjallhvítaratriðinu kl 16:00 á morgun. Ef foreldrar gætu átt orð við Guðrúnu fyrir eða eftir þá æfingu og svo myndum við taka endanlega ákvörðun seinniparinn á morgun.
Nánar...
 
Æfing fyrir Æskan og Hesturinn Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25. Apríl 2010 13:01

Æfingar fyrir Mjallhvítar-atriðið verða í næstu viku sem hér segir:

Mánudag og fimmtudag kl 16:00

Á föstudag verða svo hestarnir þrifnir og nestið smurt. Tímasetning kemur síðar.

 
Knapamerki 3 - Próf Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 22. Apríl 2010 00:08
3knapamerkiPróf í knapamerki 3 verður haldið þriðjudaginn 27.apríl klukkan 16.00 í Top Reiter höllinni á Akureyri. Þeir sem ætla að þreyta prófið er frjálst að mæta fyrr í höllina til að hita upp eða æfa sig að öðru leiti. Mælt er með því að knapar mæti tímanlega og snyrtilegir til fara og með snyrtilega reiðskjóta. Þið sem ætlið að taka prófið megið sjálf raða ykkur upp í röð fyrir það, það er frjálst hvernig hún er. Kveðja Arndís. Og gangi ykkur sem best.
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL