Ákveðið hefur verið að próf í knapamerkjum verðí frestað fram í næstu viku. Væntanlega verður það á þriðjudag, en veltur þó á því að prófdómari geti mætt á þeim tíma. Ekki hefur náðst í prófdómara og því er endanleg tíma og dagsetning ekki klár. Við munum uppfæra fréttir af prófinu um leið og svör hafa fengist hjá prófdómara.
Álfssonur skoðaður í Hringsholti.
Laugardagur, 17. Apríl 2010 23:36
Hluthafar um stóðhestinn Ás Eyfjörð frá Bakka, fola á öðrum vetri undan Álfi frá Selfossi og Millu frá Bakka mættu í Svarfaðardalinn í dag í pílagrímsferð að skoða folann. Ásamt því að líta folann augum í Hringsholiti og skoða aðstöðu okkar hringsfélaga heimsóttu Þeir hrossaræktarbúið Jarðbrú og skoðuðu ræktunina þar. Í lokin var svo farið að Björgum og skoðuð glæsileg aðstaða sem er þar á bæ.
Baldur frá Bakka allur.
Laugardagur, 17. Apríl 2010 23:44
Stóðhesturinn og höfðinginn Baldur frá Bakka IS1984165010 er allur.
Þessar fréttir bárust á dögunum, en klárinn var eins og áður hefur komið fram á síðunni staðsettur á Hawaii. Í vetur heimsótti guðfaðir Baldurs og nafni Baldur Þórarinsson frá Bakka klárinn og herma fregnir að miklir fagnaðar fundir hafi orðið meðal þeirra. En í haust hófust tökur kvikmyndar þar sem Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður hefur fylgt Baldri Þórarinssyni um heimahaga þeirra nafnanna, og meðal annars heimsóttu þeir klárinn í byrjun febrúar.
Á morgun laugardag 17.apríl verður reiðgerðið lokað milli kl 12:30 og 13:00 vegna útleigu(Doddi og Þór).
Æfingar hjá Börnunum um komandi helgi
Miðvikudagur, 14. Apríl 2010 00:24
Æfingar verða á laugardaginn fyrir börn og unglinga á sama tíma og vant er. á sunnudaginn verða æfingar fyrir æskan og hesturinn og mætir þrautabrautar atriðið klukkan 10.30 og Mjallhvítaratriðið klukkan 13.15. Fundur verður síðan milli klukkan 12.00 og 13.00 til þess að ganga frá lausum endum fyrir æskan og hesturinn. Vil ég biðja alla foreldra um að mæta á fundinn. Það verður að ganga frá búningamálum, velja lög, klára sögu og æfa sögumann og svo hverjir geta komist með kerru. kveðja Guðrún Rut