Velkomin á heimasíðu Hrings
Glæsilegur árangur á Íslandsmóti Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 17. Ágúst 2010 00:22

Um sl. helgi fór fram á Hvammstanga Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum. Hringur átti tvo fulltrúa þær Önnu Kristínu Friðriksdóttur og Ellen Ýr Gunnlaugsdóttur. Það er skemmst frá því að segja að þær stóðu sig hreint frábærlega og voru báðar í verðlaunasætum á mótinu. Til hamingju stelpur :)

Í Fjórgangi unglinga voru A- úrslit eftirfarandi:

1 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 6,49
2-3 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 6,42
2-3 Brynja Kristinsdóttir / Barði frá Vatnsleysu 6,42
4 Þórunn Þöll Einarsdóttir / Mozart frá Álfhólum 6,38
5 Ásta Björnsdóttir / Glaumur frá Vindási 6,30
6 Ellen Ýr Gunnlaugsdóttir / Svanur Baldur frá Litla-Hóli 6,28

Nánar...
 
Stórmót Funa Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 12. Ágúst 2010 12:27

Opið stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 21.-22. ágúst.

Keppt verður í A- og B-flokki, polla-, barna- unglinga- og ungmenna¬flokki og verður forkeppnin með þrjá inni á vellinum í einu.

Einnig verður töltkeppni með tvo inni á velli í forkeppni og kappreiðar með keppni í 100 m flugskeiði, 150 og 250 m skeiði, 300 m brokki og 300 m stökki.

Nánar...
 
Íslandsmót fullorðina Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 11. Ágúst 2010 11:50
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 25.- 28. ágúst.

Tekið er við skráningum á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hjá Sveini í síma 8616907  til kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 13. ágúst.

Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, nafn og IS númer hests og í hvaða greinum viðkomandi ætlar að keppa.

Skráningagjald er 4.000 krónur

Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma 698-3168 fyrir 20. ágúst.

Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

 
Fiskidagskappreiðar Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 02. Ágúst 2010 23:53
Mótanefnd Hrings hefur ákveðið að fresta áður auglýstum Prómens Fiskidagskappreiðum sem fyrirhugað var að halda fimmtudaginn 5. ágúst. Ástæða frestunar er dræm þátttaka. Áætlað er að reyna að halda mótið síðar í mánuðinum.
 
Minnum á skráningarfrest. Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 31. Júlí 2010 12:02

Fiskidagskappreidar lit plagatMótanefnd Hrings minnir á skráningarfrest vegna Prómens Fiskidagskappreiða sem fram fara fimmtudaginn 5.ágúst nk. Skráð er í gegnum heimasíðu félagsins, í valstikunni hér hægra megin. En einnig er hægt að smella hér. Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér fyrir neðan.

Nánar...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL