|
Tilkyning frá stjórn og hagaráði Hrings |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinn Torfason
|
|
Mánudagur, 14. Júní 2010 00:16 |
|
Af gefnu tilefni vill stjórn félagsins ásamt hagaráði koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Félagsmönnum er ekki heimilt að taka hross annarra í hagagöngu nema í samráði við hagaráð. Stundi félagsmenn tamningar fyrir aðra en félagsmenn og/eða að félagsmaður fái lánuð hross til ferðalaga eða annarra afnota getur hagaráð veitt félagsmanni tímabundið leyfi gegn gjaldi. Þó skal fjöldi hrossa ekki vera meiri en 10 fyrir hvern félagsmann.
Skulu félagsmenn ganga fyrir í umsóknum um haga félagsins .
|