Viðhald á reiðvegi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Sveinn Torfason   
Þriðjudagur, 22. Júní 2010 00:00

Fyrir um rúmri viku síðan stóð reiðveganefnd fyrir vinnudegi í samráði við félagsmenn og bændur í Svarfaðardal. Verkefnið var að klára reiðveginn sem byrjað var á í fyrra sumar. Núna er því kominn reiðvegur frá Hringsholti samfleytt að Bakka og eru þetta um 10 km. Hafist var handa að morgni, tekið smá matarhlé þar sem fjáröflunnarnefndin sá um að kokka ofan í "vinnumenn". Verkinu lauk svo um 17:00 og deginum slúttað með grilli. Viljum við þakka öllum þeim sem að þessu komu, enda nánast óframkvæmanlegt án ykkar allra. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá vinnudeginum.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 22. Júní 2010 00:08