Minnum á skráningarfrest. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 31. Júlí 2010 12:02

Fiskidagskappreidar lit plagatMótanefnd Hrings minnir á skráningarfrest vegna Prómens Fiskidagskappreiða sem fram fara fimmtudaginn 5.ágúst nk. Skráð er í gegnum heimasíðu félagsins, í valstikunni hér hægra megin. En einnig er hægt að smella hér. Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér fyrir neðan.

Fimmtudaginn 5. ágúst kl 17:00 verða haldnar kappreiðar á Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík.

Keppt verður í 100m skeiði fljúgandi start, 150m skeið, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum – Rafræn tímataka.

Vegleg peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein, að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net.

Skráningargjald er kr 3000. á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.

Skráningargjald greiðist inn á reikning félagsins fyrir kl. 20:00 þriðjudaginn 3.ágúst.

Kt. 540890-1029   Reikn.1177-26-175 – skýring:Nafn knapa

Kvittun sendist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Mótshaldarar áskila sér rétt að fresta móti, verði þátttaka ekki næg.

Mótanefnd Hrings.

Síðast uppfært: Laugardagur, 31. Júlí 2010 12:20