Fræðslukvöld ÍSÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Sveinn Torfason   
Föstudagur, 11. September 2009 12:19
Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík.  Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta.  Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00.  Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám.  Fræðslan getur t.d. í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun. Skráning er á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið.Námskeiðsgjald er kr. 3.500.- og greiðist fyrir upphaf námskeiðs.Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  Skipulag fræðslukvölda á haustönn 2009 (með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar): Fim. 17. sept. á Akureyri.  Næring íþróttafólks/lyf og íþróttir Fim. 24. sept. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti) Fim. 8. okt. á Akureyri.  Íþróttameiðsl. Fim. 15. okt. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti) Fim. 22. okt. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti) Fim. 29. okt. í Reykjavík.  Starfsemi líkamans Fim. 5. nóv. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti) Fim. 12. nóv. í Reykjavík.  Íþróttasálfræði Fim. 19. nóv. á Akureyri.  Siðfræði/forvarnir. Fim. 26. nóv. í Reykjavík.  Siðfræði/forvarnir  Fyrirlesarar/kennarar á framangreindum fræðslukvöldum verða m.a. eftirtaldir: Rúnar Andrason                                                                                      SálfræðingurHafrún Kristjánsdóttir                                               SálfræðingurFríða Rún Þórðardóttir                                              NæringarfræðingurÖrvar Ólafsson                                                            Verkefnisstjóri hjá ÍSÍStefán Ólafsson                                                                                       SjúkraþjálfariViðar Sigurjónsson                                                     Sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ