|
Hugljúf heimildarmynd um Baldur frá Bakka |
|
|
|
|
Skrifað af: Hringurdalvik
|
|
Þriðjudagur, 15. September 2009 20:41 |
|
Baldur frá Bakka heimsækir Baldur frá Bakka.
Frétt úr bændablaðinu 10.sept.09 Þorfinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður undirbýr nú gerð kvikmyndar þar sem við sögu koma stóðhesturinn Baldur frá Bakka og guðfaðir hans og fyrsti eigandi, Baldur Þórarinsson frá Bakka í Svarfaðardal. Um síðustu helgi var Þorfinnur staddur með tökuliði sínu á meðal gangnamanna í Sveinsstaðaafrétt og í Tungurétt í Svarfaðardal þar sem teknar voru mannlífsmyndir á æskustöðvum stóðhestsins frækna sem varð heimsmeistari í fimmgangi í Þýskalandi árið 1999. Úr Svaraðardal liggur leiðin til Hawaii í febrúar nk. en þar er klárinn nú niður kominn og unir hag sínum vel orðinn 25 vetra gamall.
Eftir sigurinn í Þýskalandi var Baldur keypur til Kaliforníu en síðast eignaðist hann kona nokkur sem ræktar íslenska hesta á Hawaii. Að sögn Bjarna Óskarssonar sem er framleiðandi myndarinnar verður þetta hugljúf mynd um samband manns og hests og nær hámarki þegar þeir nafnarnir og fornvinirnir hittast undir hitabeltissólinni á Hawaii eftir áralangan aðskilnað. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. September 2009 23:15 |