Veðrið á Dalvík

Reiðgerði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 26. Október 2009 00:12

Á haustfuni hestamannafélagsins var samþykkt að gjald skyldi tekið fyrir notkun á reiðgerði/reiðhöll í Hringsholti. Lagt er upp með að gera þetta á eins einfalt og þægilegt fyrir alla aðila. Ástæða gjaldtöku er sú að reiðgerðið er stór útgjaldaliður hjá félaginu og þótti kominn tími til að klára það sem oft hefur verið rætt en aldrei komið í verk.

Það er mikilvægt að félagsmenn átti sig á því að þjónusta við gerðið verður sú sama og verið hefur, þ.e. við þurfum sjálf að verka upp eftir okkur og ganga vel frá, þessi gjaldtaka er aðeins til að koma til móts við þann kostnað sem það kostar að reka þessa aðstöðu í þeirri mynd sem hún er í dag og almennt viðhald. Komi til þess að umgengni versni, þannig að meiri vinna leggist í að halda aðstöðunni í nothæfu formi, getur það kostað okkur töluvert meira. Því er það okkar allra hagur að vel sé gengið um og að öllum ábendingum um hluti sem lagfæra þurfi eða er ábótavant sé komið til stjórnar eða mannvirkjanefndar.

Endanleg verðskrá verður sett á heimasíðu félagsins þegar nær dregur gjaldtöku, en hún hefst frá og með 1. janúar 2010.

Í desember verða auglýstir dagar þar sem notendur að gerðinu geta borgað fyrir notkun næsta tímabils.

Verð fyrir félagsmenn tímabilið ( 01.01.10 - 31.12.10)  er eftirfarandi:

Fullorðnir 4000 kr

17 - 20 ára: 2000 kr

Börn : Frítt.

Gift/sambúðarfólk: þá gildir sama regla og með árgjald félagsins, þá er borgað eitt og hálft gjald 6000 kr.

Fyrir utanfélagsmenn er verðskráin eftirfarandi:

Fullorðnir: 8000 kr

18. ára og yngri 4000 kr.