|
|
|
Hástökkvari á Íslandsmóti. |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinn Torfason
|
|
Miðvikudagur, 01. September 2010 01:35 |
Það er óhætt að segja að þeir Stefán Friðgerisson og Dagur frá Strandarhöfði hafi verið hástökkvarar Íslandsmótsins sem fram fór á Sörlastöðum sl helgi. En þeir félagarnir gerðu sér lítið fyrir og hömpuðu 2 sæti eftir að hafa verið í 11 sæti eftir forkeppni. Eins og áður hefur verið tekið fram á síðunni sigruðu þeir félagarnir B-úrslitn og unnu sér því rétt til að taka þátt í A-úrslitum. Eins og flestir sáu áttu þeir þetta fyllilega skilið enda glæsilegt og reynt par á keppnisvellinum þar á ferð. Til hamingju með frábæran árangur :) |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. September 2010 01:46 |
|
Stefán og Dagur komnir í A-úrslit |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinn Torfason
|
|
Föstudagur, 27. Ágúst 2010 23:17 |
|
Nú liggja fyrir B-úrslit í fimmgangi. Reynsluboltarnir og Hringsfélagarnir Stefán Friðgeirsson og Dagur frá Strandarhöfði sigruðu og færast því upp í A-úrslit sem fara fram á morgun laugardag. En eftir forkeppnina voru þeir félagar í 11.sæti en færðust upp í það 10 eftir að Viðar Bragason valdi annan af tveimur hestum í B-úrsltium.Svo er bara að krossa fingur og senda góða strauma til þeirra félaga fyrir A-úrslitin á morgun. :)
Úrslit eru eftirfarandi:
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 27. Ágúst 2010 23:26 |
|
Nánar...
|
|
|
Skrifað af: Sveinn Torfason
|
|
Mánudagur, 23. Ágúst 2010 10:28 |
|
Þá er lokið ágætu móti á Melgerðismelum þrátt fyrir mikla rigningu á sunnudeginum. Hringur átti nokkra fulltrúa sem allir stóðu sig með miklum sóma. Sterkir hestar voru á mótinu og sáust tölur upp í 8,71 í A-flokki hjá Tristan frá Árgerði og fast á eftir 8,70 hjá Degi frá Strandarhöfði og Stefáni Friðgeirssyni.
Anna Kristín Friðriksdóttir og Glaður frá Grund áttu einnig mjög góðann dag og sigruðu í fjórgangi unglinga með 8.53.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 23. Ágúst 2010 10:47 |
|
Nánar...
|
|
Upptökupróf í Knapamerkjum |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinn Torfason
|
|
Miðvikudagur, 18. Ágúst 2010 13:41 |
Upptökupróf í knapamerkjunum verður haldið í Top reiter höllinni á Akureyri fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 17.00 Æfing fyrir prófið verður í Hringsholti miðvikudaginn 25. ágúst milli klukkan 17 og 19, Arndís verður á staðnum þá og hjálpar þeim sem ætla að þreyta prófið á fimmtudeginum. Einnig verður hægt að mæta fyrr inná Akureyri á fimmtudeginum og æfa í reiðhöllinni fyrir prófið. Prófdómari verður Sara Arnbro. Hvet ykkur allar til að mæta, og endilega hafið samband við Arndísi(896-4419) eða Guðrúnu Rut(695-8766) ef einhverjar spurningar vakna. |
|
|
|
|
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |