Á félagsfundi Hrossaræktarfélags Svarfaðardals og nágrennis sl. föstudagskvöld voru veittar viðurkenningar fyrir árangur í ræktun á árinu. Veitt voru verðlaun fyrir hæst dæmdu hrossin í hverjum flokki. Baldur Þórarinsson sem fékk viðurkenningu fyrir tvö hross. Annars vegar fyrir 5 vetra stóðhestinn Íslands-Blesa frá Dalvík og fyrir 6 vetra hryssuna Svörtusól frá Dalvík. Friðrik Þórarinsson fékk viðurkenningu fyrir 4 vetra hryssuna Eik frá Grund og Þorsteinn Hólm fékk viður kenningu fyrir 5 vetra hryssuna Tinnu frá Jarðbrú.