Fréttir Fiskur
Fiskidagskappreiðar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 02. Ágúst 2010 23:53
Mótanefnd Hrings hefur ákveðið að fresta áður auglýstum Prómens Fiskidagskappreiðum sem fyrirhugað var að halda fimmtudaginn 5. ágúst. Ástæða frestunar er dræm þátttaka. Áætlað er að reyna að halda mótið síðar í mánuðinum.
Síðast uppfært: Mánudagur, 02. Ágúst 2010 23:57
 
Minnum á skráningarfrest. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 31. Júlí 2010 12:02

Fiskidagskappreidar lit plagatMótanefnd Hrings minnir á skráningarfrest vegna Prómens Fiskidagskappreiða sem fram fara fimmtudaginn 5.ágúst nk. Skráð er í gegnum heimasíðu félagsins, í valstikunni hér hægra megin. En einnig er hægt að smella hér. Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér fyrir neðan.

Síðast uppfært: Laugardagur, 31. Júlí 2010 12:20
Nánar...
 
150 m skeið - Viðbót í dagskrá Fiskidagskappreiða Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25. Júlí 2010 23:02
Vegna eftirspurnar hefur mótanefnd Hrings ákveðið að bæta við 150m skeiði í áður auglýsta dagskrá Prómens Fiskidagskappreiða. Vonumst við til að sem flestir láti sjá sig. Nú þegar eru skráningar farnar að detta í hús og því hækkar verðlaunapotturinn frá degi til dags. En eins og áður hefur komið fram rennur helmingur af skráningargjaldi hverrar greinar beint í verðlaunafé.
Síðast uppfært: Sunnudagur, 25. Júlí 2010 23:22
 
Fiskidagskappreiðar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 19. Júlí 2010 01:46

Fiskidagskappreiðar 2010.

Fimmtudaginn 5. ágúst verða haldnar kappreiðar á Hringsholtsvelli í Svarfaðardal við Dalvík.

Keppt verður í 100m skeiði fljúgandi start, 250 m brokk, stökk og skeið úr startbásum – Rafræn tímataka.

Vegleg peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein, að auki fá sigurvegarar glæsilegan ferðakistil framleiddan af Prómens Dalvík.

Skráningarfrestur er til 1. ágúst kl 20:00 og fer fram í gegnum heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net.

Skráningargjald er kr 3000. á hest pr.grein. Þar af rennur 50% af skráningargjaldi í verðlaunafé sem gerir grunnpottinn enn stærri.

Skráningargjald greiðist inn á reikning félagsins fyrir kl. 20:00 þriðjudaginn 3.ágúst.

Kt. 540890-1029   Reikn.1177-26-175 – skýring:Nafn knapa

Kvittun sendist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.    

Mótshaldarar áskila sér rétt að fresta móti, verði þátttaka ekki næg.

Mótanefnd Hrings.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. Júlí 2010 11:24
Nánar...