Anna Kristín Friðriksdóttir Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2013

Anna Kristín og Glaður frá Grund
Anna Kristín og Glaður frá Grund

 Published on Friday, 03 January 2014 

Rétt í þessu fór fram kjör á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2013. Fulltrúi Hrings var Anna Kristín Friðriksdóttir sem einnig var kjörin íþróttamaður Hrings á haustdögum. Anna Kristín átti mjög gott keppnisár og landaði mörgum titlum á keppnisvellinum, þá var hún einnig tilnefnd til efnilegasti knapi árisns af LH. Til að gera langa sögu stutta þá vann Anna Kristín titilinn Íþróttamaður Dalvíkurbyggaðar og því fyrsti Hringsfélaginn sem hlýtur þann titil. 

Til hamingju Anna Kristín og til hamingju Hringsfélagar.