Fyrirhugað er að halda reiðnámskeið með Reyni Atla Jónssyni helgina 16-18 maí 2025.
Reynir Atli er menntaður reiðkennari frá Hólum og er einnig Gæðingadómari.
Föstudaginn 16. maí kl 20:00 verður hann með fyrirlestur um sögu Gæðingakeppninnar og rennir í gegnum leiðarann.
Námskeiðið er sett þannig upp að á laugardeginum verða 2 tímar 30 mín hvor, fyrri tíminn er einkatími en í seinni tímanum verða tveir saman, á sunnudegi verður 40 mín einkatími.
Þeir sem velja keppnisnámskeið, þá tekur Reynir Atli ykkur upp á sunnudeginum ríða prógram og fer svo yfir það með ykkur.
Lágmarks fjöldi er 6 manns til að námskeið verði haldið.