Reiðnámskeið með Reyni Atla 12-13 feb.

Reynir Atli
Reynir Atli

Reynir Atli er menntaður reiðkennari C frá Hólum og er einnig Gæðingadómari.
Námið er einstaklingsmiðað að þörfum hvers og eins hvort sem fólk stefnir á keppni eða almenna reiðmennsku,  lagt er upp með að tímarnir séu 40 mínútur í senn.

Verð er krónur 22.000,- fyrir félagsmenn og 25.000,- fyrir utan félagsmenn, lágmark 6 nemar til að námskeiðið verði haldið.  Skráning fer fram á netfanginu vhagg@simnet.is eða í gsm 848 4728 Lilja Björk, skráningarfrestur er til og með 5 febrúar.  ATH. að sum stéttarfélög veita „tómstundastyrki“ út á reiðnámskeið.

Fræðslu og ferðanefnd.