Reiðnámskeið með Reyni Atla 20-21 maí

Fyrirhugað er að halda reiðnámskeið með Reyni Atla Jónssyni helgina 20-21 maí.

Reynir Atli er menntaður reiðkennari C frá Hólum og er einnig Gæðingadómari.
Námið er einstaklingsmiðað að þörfum hvers og eins hvort sem fólk stefnir á keppni
eða almenna reiðmennsku,  lagt er upp með að tímarnir séu 45 mínútur í senn.

Lágmarks fjöldi er 6 manns til að námskeið verði haldið.

Verð er krónur 23.000,-  fyrir félagsmenn,
  skráning fer fram á netfangið vhagg@simnet.is eða í gsm 848 4728 Lilja Björk
  skráningarfrestur er til og með 14. maí. 
  ATH sum stéttarfélög veita styrki út á reiðnámskeið.
                                                                        Fræðslu og ferðanefnd.